Sagan okkar

Frá hugmynd að veruleika.

Ísbúðin Akureyri opnaði þann 17. maí, árið 2013. Eigendur eru Eyþór Ævar Jónsson og Gréta Björk Eyþórsdóttir.

Við vorum búin að ganga með það lengi í maganum að opna litla sæta ísbúð, en leit að hentugu húsnæði gekk hins vegar erfiðlega. Í febrúar 2013 bauðst okkur núverandi húsnæði í Geislagötu 10 sem var reyndar töluvert mikið stærra en við ætluðum okkur og var því alltaf fyrirséð að við gætum boðið upp á eitthvað meira en ís.

Við hófum framkvæmdir í mars sama ár og með hjálp barna, fjölskyldu og góðra iðnaðarmanna þá tókst okkur á skömmum tíma að koma upp þessari glæsilegu ísbúð.

Í upphafi buðum við líka upp á kaffi og tertur en fljótlega tókum við út terturnar og fórum að útbúa samlokur og ferska djúsa, þar sem mikil eftirspurn var eftir slíku. Í dag er ísbúðin okkar í Geislagötu hvorutveggja ísbúð og booztbar, þar sem við höfum bætt við boozt skálum og drykkjum við samlokurnar og djúsana.

Viku eftir opnun Ísbúðarinnar í Geislagötu festum við kaup á Ísbúðinni á Glerártorgi sem við breyttum í stíl við búðina í Geislagötunni og eigum við því í dag og rekum tvær búðir. Á Glerártorgi bjóðum við líka upp á, ásamt ísnum, samlokur, djúsa, boozt skálar og drykki, pylsur og gos.

Við fjölskyldan höfum verið mjög samhent og börnin hafa tekið fullan þátt í þessum rekstri og vinna mikið með okkur.

— Eyþór og Gréta

Ísbúðin Akureyri á Geislagötu